Nomy veisluþjónusta

Nomy er með aðsetur í glæsilegu eldhúsi að Hjallabrekku 2 í Kópavogi

Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur Nomy veisluþjónustan getið sér gott orð fyrir frábæra þjónustu og mat. Nomy var opnuð formlega í sumar og er með aðsetur í glæsilegu eldhúsi að Hjallabrekku 2 í Kópavogi.

Nomy veisluþjónusta
Nomy veisluþjónusta

Þeir sem standa að Nomy erum allir metnaðarfullir matreiðslumeistarar, en þeir eru Bjarni Siguróli Jakobsson, Fannar Vernharðsson og Jóhannes Steinn Jóhannesson.

Sjá einnig: Ein öflugasta kokkasveit landsins opnar veisluþjónustu

Á facebook síðu Nomy má sjá myndir af veisluréttum sem eru girnilegir og glæsilegir að sjá.

Nomy veisluþjónusta

Seljurótar “klemmur” með eplum, döðlum & heslihnetum.

Nomy veisluþjónusta

Bleikja í hjartasalati með lárperukremi, granatepli & sólselju.

Nomy veisluþjónusta

Grilluð & gljáð lúða á beini.

Nomy veisluþjónusta

Humar & hvítur aspas í seljurótar “taco”

Nomy veisluþjónusta

villibráð

Nomy veisluþjónusta

Möndlukaka með Tanariva mjólkursúkkulaði ganache og íslenskum jarðarberjum.

Umsagnir viðskiptavina

Almenn ánægja ríkir um þjónustu Nomy eins og sjá má í ummælum viðskiptavina á facebook:

“Ég mæli 100% með Nomy veisluþjónustu. Þeir sáu um matinn í brúðkaupinu okkar og voru fagmennskan uppmáluð! Við þurftum ekki að hafa áhyggjur af neinu og maturinn var ekkert minna en fullkominn!”

“Besta og faglegasta veisluþjónusta sem ég veit um. Er ennþá að hugsa um anda croquette bollurnar”

“Ég get eiginlega ekki útskýrt nægilega vel með orðum hversu ánægð við vorum með matinn hjá strákunum á Nomy í brúðkaupinu okkar. Fagmennska fram í fingurgóma. Við hjónin vorum með ákveðnar séróskir um matarstemninguna í veislunni og fóru þeir langt fram úr væntingum okkar. Maturinn sem og útfærslan á matnum var svo frábær að um var talað lengi á eftir.”

Myndir: facebook / Nomy veisluþjónusta

Skildu eftir svar